...tölvan er nefnilega enn í viðgerð

En það gengur allt sinn vanagang hjá okkur familíunni. Það styttist í fermingardaginn og undirbúningur á fullu. Hún Ragnhildur mín verður fallegasta og fullkomnasta fermingarbarn sem heimurinn hefur augum litið

Annars er bara allt í þessum venjulega gangi. Fótboltamótin að fara af stað. Kappinn mun spila í Mosó þann 22. mars og í Egilshöllinni 29. mars. Svo er Shellmótið í Eyjum náttúrulega yfirvofandi, þannig að ef einhver vill kaupa af Þórði klósettpappír eða bílahreinsivörur þá endilega kommentið um það hér. Hugsanlega munu Framarar líka selja fisk og harðfisk til fjáröflunar þannig að úrvalið verður gríðarlegt

Ragnhildur mun keppa á Íslandsmótinu í Taekwondo þann 22. mars (ég þarf greinilega að skipta mér í tvennt þann daginn). Mótið verður haldið á Selfossi og það er æft grimmt. Ragnhildur er stórkostlega marin á öðru handarbakinu og hnúunum eftir að hafa barið í gegnum viðarplötu, bólgin á rist eftir að hafa sparkað í hné á mótherja á æfingu og fleira og fleira. Hún reynir að tjasla þessu eitthvað saman á milli æfinga og setur svo bara í herðarnar og hamast á æfingum eins og mest hún má þessi snillingur.
Litlu gullmolarnir mínir þeir Kristján Ragnar og Úlfar óskabarn eru sem fyrr hreint yndislegir. Úlfar er búinn að læra að þakka fyrir sig og gerir það í tíma og ótíma. Kristján Ragnar er mjög upptekinn af því að heilsa og kveðja og gerir það óspart. Hann meira að segja rak mig út einn daginn, en það var nú ekki til að kveðja mig heldur langaði hann sjálfan út. Og hvað gerir maður þá... nú segir bara við gestinn "bæ, bæ, bess"